þriðjudagur, maí 17, 2005

Hvenær verður sumarið í alvöru komið?

Brrr, það var svo kalt í morgun. Gleymdi samt að líta á hitamælinn í mælaborðinu á fína bílnum :O) Á sunnudaginn hélt ég að sumarið væri komið. Settist út á svalir með skóladótið mitt og fór að lesa og njóta blíðunnar. Var svo farin að roðna á bringunni svo ég ákvað að klína á mig smá sólarvörn sem hafði að sjálfsögðu þær afleiðingar að sólin hvarf á bak við stórt ský. Svo hékk ég bara inni í gær að reyna að basla saman ritgerð og í morgun var kalt. Svo ég spyr: Hvenær verður sumarið komið í alvöru?

Engin ummæli: