þriðjudagur, maí 24, 2005

Júró smúró

Er búin að vera að reyna að rifja upp hvernig gríska júróvisjón lagið hljómar og þegar ég loksins mundi það er það pikkfast á heilanum mínum. Alveg ferlegt þar sem þetta er frekar leiðinlegt lag ... reyndar með alveg þrælfyndnum texta. Rímið er alveg til fyrirmyndar sbr. Come my lover - undercover og Say you miss me - come and kiss me.
Svo ætla ég ekki að tjá mig meira um júróvísjón fyrr á næsta ári enda komin með leið á umræðum um það hvers vegna í ósköpunum Selma meikaði það ekki.

Engin ummæli: