þriðjudagur, maí 10, 2005
Mannauðsstjórinn upprennandi
Ég fékk bréf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ í gær. Eftir mikla umhugsun komust stjórnendur í deildinni að þeirri skynsamlegu niðurstöðu að rétt væri að veita mér inngöngu í MA nám í mannauðsstjórnun. Ég varð mikið glöð. Þarf bara að ákveða í hvaða námskeið ég ætla að skrá mig og ganga frá skráningu fyrir mánaðamótin. Þarf svo kannski bara að finna einhvern mannauð til að stjórna. Ja ... nema ég telji Andra sem mannauð. Ég er sko dugleg að stjórna honum og kann það alveg. Þarf ég kannski ekkert á þessu námi að halda?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Bíddu,bíddu, varstu ekki búin að ákveða að fara í annað nám, hmm...hvar missti ég af lestinni?, ætlaðirðu ekki að fara í umm..ahkj man ekki hvað það heitir, eitthvað alþjóða, smáríkja eitthvað, þanna nýja námið.
En til hamingju með þetta, þú verður örugglega góður mannauðsstjórnandi ;), þarf mann samt ekki að stjórna fleiri en einum í einu, kannski er það það sem þeir kenna, námskeiðið: hvernig á að stjórna tveim í einu;)
já þetta var s.s. Hrönn :)
Jú ... var að spá í alþjóðasamskiptum en áður en ég fór að hugsa um það var ég að pæla í mannauðsstjórnun. Skipti svo aftur um skoðun. Bara svona týpísk ég ;)
Já, það er kannski trixið - að stjórna tveimur í einum og ef maður er rosa klár - þremur!
Skrifa ummæli