fimmtudagur, júní 09, 2005

Diskó friskó

Er að reyna að sækja disco skýrslur sem eru langt frá því að vera eins skemmtilegar og þær hljóma. Tekur óratíma að sækja þær og það hefur verið sérstaklega slæmt upp á síðkastið. Það gerir mig heldur ekki kátari að lenda í vandræðum með að logga mig inn svo ég geti byrjað að sækja þessar skýrslur. Ætli lífið hafi verið auðveldara á tímum spjaldaskráa?

1 ummæli:

hdb sagði...

Var það ekki einmitt á diskótímabilinu?