föstudagur, júní 24, 2005
Gleðifréttir
Hafði þið heyrt gleðifréttir á Bylgjunni? Það hittir nefnilega alltaf þannig á að þær eru á meðan ég er á leiðinni heim úr vinnunni svo að ég hef heyrt þær nokkrum sinnum. Því miður. Þetta eru sem sagt Gísli Rúnar, nágranni minn Laddi og einhver einn enn sem ég þekki ekki að reyna að upphefja forna fyndni sína. Ég held því miður að fyndnin sé glötuð, a.m.k. er hún ekki að skila sér í þessum þáttum. Reyndar slysuðust þeir einu sinni til að vera svo hrikalega ófyndnir að það var ekki annað hægt en að brosa. Soldið svona sama tilfinning og maður fær þegar fimm ára barn í svefngalsa segir í 37. skiptið brandarann um tómatinn sem var keyrt yfir.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Held einmitt að þetta eigi að heita ógleðifréttir - það er allavega tilfinningin sem ég hef fengið í þau örfáu skipti sem ég hef heyrt glefsur úr þessu.
hahaha, eg get bara imyndad mer, reyni ad fordast thetta thegar eg kem heim :)
Hronnz
Skrifa ummæli