
Ég sé út um gluggann minn nokkra unglinga og af hjólbörunum við hliðina á þeim myndi ég halda að þau væru í unglingavinnunni. Að öðru leyti lítur þetta ekki mikið út sem vinna en það virðist fara mjög vel um þau þar sem þau flatmaga ofan á peysunum sínum í sólríku skjóli við nokkur tré. Svo dró fyrir í smá stund og þá virtust sumir rumska aðeins til að snúa sér á hina hliðina.
4 ummæli:
Heyrðu góða mín, þetta kallast að vera í kaffipásu í góðu veðri! :) Ég kannast vel við þetta úr firðinum (þar sem er alltaf betra veður en í rvk og þ.a.l. meira um sólböð).
Þessir blessuðu unglingar þurfa líka meiri hvíld en aðrir og því ekki hægt að lá þeim þó þeir leggist niður annað slagið ;)
Vert þú bara ekkert að koma óorði á þá! hehe
Magga, er kannski hægt að sækja um að komast að í flokkinn hjá þér?
ekki málið! þ.e.a.s. ef ég fæ flokk! það varð smá ruglingur þar sem við erum 2 með sama nafnið og þeir héldu að við værum sama manneskjan... sem við erum ekki sko! Hún fékk flokk en ekki ég. Þannig að ég verð kannski bara ein í flokk í sumar ;) Gæti verið verra...
Get ég þá ekki bara verið flokkurinn þinn?
Skrifa ummæli