föstudagur, ágúst 05, 2005

Bað, bað, bað og aftur bað

Jæja, baðherbergisframkvæmdum miðar vel áfram, sérstaklega sé tillit tekið til þess að við skötuhjúin höfum verið á Vestfjörðum síðustu vikuna. En nú er hægt að fara í bað í Álfholtinu og bara eftir að ganga frá svona smotteríi eins og flísum í kringum baðið og skápum og handklæðaofni. All in good time eins og maðurinn sagði.
Ég er hins vegar komin í svo mikla sumafrísafslöppun að það er ekki víst að ég rati í vinnuna aftur. Vika á Patró er ein sú mesta afslöppun sem ég þekki og þrátt fyrir smá æsing í Byko þegar við vorum komin á suðvesturhornið aftur er ég enn í algjörum rólegheitagír, sef í tólf tíma á sólarhring og les, prjóna og dútla mér þegar ég er vakandi. Er semsagt í fríi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með baðið! :)
Ég er enn haldin svefnsýki eftir patró ævintýrið mikla! Á erfitt með að drattast á fætur fyrir hádegi þrátt fyrir 13 tíma svefn! Það verður gaman að rífa sig upp á mánudagsmorgun til að fara að vinna....