miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Uppgjöf


Eftir rúma viku af hósta sem bara hefur versnað með hverjum deginum ákvað ég að játa mig sigraða í bili og vera heima í dag. Held að tölvuskjárinn í vinnunni sé þakklátur ... það var komið að því ég þyrfti að finna rúðuþurrkur á hann til að fjarlægja hóstafrussið jafnóðum. Mission dagsins er að reyna að finna lækni sem má vera að því að hlusta mig og hanga á netinu í nýju fartölvunni uppi í rúmi. Hóst, hóst.

Engin ummæli: