Aumingja Andri ... ekki nóg með að hann sé enn hálflasinn þá er tengdapabbi hans nýbúinn að rífa annan endajaxl úr honum svo að hann er lagstur í bælið aftur. Og þar sem ég er svo vond að ná ekki í Baywatch á vídeóleiguna fyrir hann verður hann að láta Hagkaupsblaðið duga.
Baðherbergið er smám saman að smella saman hjá okkur, en þetta má auðvitað ekki klárast of hratt. Í gær voru veggskápar hengdir upp en hurðirnar fóru ekki á þá fyrr en áðan ... en það var alfarið Ikea að kenna. Ikea seldi okkur nefnilega rangar hjarir sem að pössuðu ekki. Og þar með er ég búin að fara í Ikea þrjá daga í röð. Sé meira að segja fram á fleiri heimsóknir á næstunni þar sem ég sá nokkra hluti sem mig vantar en voru að sjálfsögðu ekki til. En ætli ég geymi það nú ekki að minnsta kosti fram yfir helgi, jafnvel lengur. Samkvæmt sölufólkinu er að koma sending eftir örfáa daga en að fenginni reynslu er ekki alltaf að marka það sem Ikea-sölufólk segir manni um væntanlegar sendingar. Jæja - bæjó!
fimmtudagur, ágúst 11, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Aumingja andri...... ég vona að hann fái ummönnun sem hæfir keisurum einum.
kaj
Úff ... ég hugsa og hugsa en fatta samt ekki hver kaj er. Er sumarfríið að fara svona með mig?
Nei, djók ... fattaði um leið og ég hætti að reyna á litla hausinn minn. En hvernig á ég að ummanna þig? Ertu ekki nógu mannaður?
Skrifa ummæli