miðvikudagur, október 12, 2005
Alltaf að læra
Mér finnst ég alveg svakalega klár í dag - miklu klárari en í gær. Ég var nefnilega á stuttu ljósmyndanámskeiði í gærkvöldi og lærði barasta á flestar, ef ekki allar, stillingarnar á myndavélinni minni. Héðan af verður sko ekkert stillt á auto og myndað út í loftið heldur get ég tekið mér góðan tíma í að stilla fram og til baka áður en ég smelli af einni einustu mynd. Mannauðurinn minn fékk svo smjörþefinn af fyrirsætuhlutverkinu þegar ég kom heim í gær á meðan ég prófaði að taka myndir af honum og breyta hinum ýmsu stillingum til að sjá hverju það breytti. Hálffullt kókglas og vatn að renna í baðið voru líka á meðal hinna áhugaverðu myndefna gærkvöldsins en svo er nú alveg spurning um að koma sér út úr húsinu í leit að myndefni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
OMG - nú verður þú alveg eins og pabbi - hálfa öld að taka eina mynd...
Skrifa ummæli