Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er mjög heiðarleg manneskja. Til dæmis get ég nefnt að um daginn vorum við slökkviliðsmaðurinn í sjoppu að kaupa kók og súkkulaði og afgreiðsludrengurinn átti eitthvað bágt með að leggja saman og ætlaði bara að rukka okkur fyrir eitt súkkulaðistykki en ekki tvö. Ég var fljót að leiðrétta þetta og borgaði fyrir allt sem ég var að kaupa - slökkviliðsmanninum til mikillar furðu (hann hefði hiklaust þagað og borðað illa fengið súkkulaðið með bestu lyst).
Vegna atburða á við þennan hefur slökkviliðsmaðurinn ekki leyft mér að gleyma því þegar ég keypti handa honum skyrtu sem vantaði verðmerkið á. Ég sagði afgreiðslumanninum að skyrtan hefði hangið á slánni sem merkt var 2.990.- og greiddi þá upphæð fyrir skyrtuna. Slökkviliðsmaðurinn hafði hins vegar tekið eftir því að hinum megin á slánni - þeim megin sem skyrtan hékk - stóð 3.990.- og fannst það óheyrilega fyndið þegar ég áttaði mig á mistökunum löngu eftir að við vorum komin úr búðinni.
Í gær var ég svo í bókabúð og í miðri búðinni var risastórt borð með bókum á útsölu og átti dágóður afsláttur að reiknast á kassa. Ég tók eina bók af afsláttarborðinu og aðra úr hillu innar í búðinni en þegar á kassann kom reiknaðist afsláttur af báðum bókunum. Ég er enn að velta því fyrir mér hvort að báðar bækurnar hafi átt að seljast með afslætti og önnur bara villst af borðinu eða hvort ég hafi verið að svindla einu sinni enn. Ég tók nefnilega ekki eftir því hvort afslátturinn skannaðist beint inn á kassanum eða hvort að afgreiðslukonan hafi reiknað hann út eftir á. Það er greinilega eitthvað farið að slakna á samviskunni minni því þrátt fyrir þessar hugleiðingar náði ég að sofa ágætlega í nótt. Vonandi heldur þessi þróun ekki áfram - ég gæti orðið þjófótt!
fimmtudagur, október 20, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli