laugardagur, október 08, 2005

Klukk #2

Ég ákvað að vera bara "memm" og hlýða klukkinu enda miklu betur upplögð núna en á miðvikudaginn.

Fimm ómerkilegar staðreyndir um Ragnheiði:

1. Þegar ég var fimm ára hélt ég að ensk au pair stúlka sem var nýkomin á heimilið myndi skilja mig ef ég talaði íslensku með bjöguðum framburði.

2. Það situr enn í mér skömmin sem ég upplifði þegar ég fattaði að systur mínar höfðu náð að gabba mig til að gera símaat með því að segja mér að pabbi væri í símanum og að ég ætti að spyrja hann hvort ég mætti fá súkkulaði.

3. Í mörg ár átti ég fiskabúr og fjöldann allan af neon-fiskum sem ég nefndi í höfuðið á persónum úr áramótaskaupinu 1984.

4. Mér finnst gott að fara snemma að sofa á kvöldin.

5. Ég er farin að hlakka til jólanna.

2 ummæli:

hdb sagði...

Ég biðst hérmeð opinberlega afsökunnar fyrir hönd okkar Báru á því að hafa pínt þig svona skelfilega. En þetta var samt alveg óborganlega fyndið...

Ragnheidur sagði...

Ætli það sé nú ekki fyrirgefið. Ég held líka að stór hluti af svekkelsinu hafi verið vegna þess að ég fékk aldrei neitt súkkulaði.