laugardagur, nóvember 26, 2005

~~~

Jæja - þá eru það fréttir. Ég vakti í alla nótt með samdrætti á 4-5 mín. fresti. Um hálffjögur kom Andri heim af vaktinni og við vöktum saman ... þangað til Andri sofnaði. Um sjöleytið ákváðum við að rúlla í heimsókn á fæðingardeildina en vorum send heim ca. einum og hálfum tíma síðar ennþá með samdrætti en litla útvíkkun. Eftir það slakaði ég samt aðeins betur á og gat sofið í svona 2 tíma. Síðan þá hafa samdrættirnir verið reglulegir og sterkir (og vondir). Dagurinn hefur svo bara farið í að bíða og anda djúpt og kreista hendina á Andra.
~~~
Ég vona bara að þessu stigi fari að ljúka og að Dósóþeus líti dagsins ljós áður en ég kem mér í að blogga meira. Svo má taka það fram að Andri var hæstur á prófinu!

P.s. Kata þú færð mörg stig fyrir viðleitni í útgönguspám þótt þær hafi ekki alveg staðist.
P.s.s. ~~~ = samdráttur

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært að heyra að litli gaur sé að hugsa sér til hreyfings(/ar) ;)Kannski mun ég hafa rétt fyrir mér og hann skjótist í heiminn í nótt :)
Vona að þér líði bara sem best dúllan mín og gangi ykkur vel :)

hdb sagði...

Svo ég færi þeim sem fylgjast með hér nýjustu fréttir þá eru Andri og Ragnheiður komin upp á fæðingadeild. Og svo koma svo!

Nafnlaus sagði...

Veij veij veij :)

you can do it!!

Nafnlaus sagði...

Þakka pent. Dósóþeus og mamm'ans og pabbi eiga marga vini sem sitja um síðuna í þeirri stigvaxandi von um að sjá drenginn sýna sjálfstæðan vilja með því að mæta á svæðið óþvingaður. Það vilja allir sjá hamingjusama litla ghurkufjölskyldu.