mánudagur, nóvember 14, 2005
Jarðskjálfti?
Ég var alveg sannfærð um að ég hefði fundið jarðskjálfta áðan þegar ég var að borða morgunmatinn minn. Jarðskjálftasíða Veðurstofunnar virðist hins vegar ekki vera sammála mér svo nú er ég farin að reyna að finna út hvaða læti þetta voru þá og hvers vegna ég sá gardínurnar hreyfast við lokaðan glugga. Þetta var ekki kötturinn því hann var upptekinn við að liggja ofan á mogganum á meðan ég var að reyna að lesa hann og þetta voru heldur ekki ruslakarlarnir sem stundum geta látið í sér heyra. Fleira hefur mér ekki dottið í hug ... nema auðvitað ímyndunaraflið mitt. Einhverjar hugmyndir?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
voru þetta ekki bara hreyfibylgjur frá Dósa? ;) Svona smá preview áður en hann kemur í heiminn :)
Kannski eru fyrstu einkenni þess að fæðing sé að fara af stað ofskynjanir og ímyndaðir jarðskjálftar. Flettu þessu upp í bókinni!
Jæja, ég er þá a.m.k. ekki gengin af göflunum.
Hvernig líður Dósanum? Er hann ekkert á leiðinni að láta sjá sig??:)
Skrifa ummæli