miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Fullt tungl

Síðan í vor hef ég verið að spjalla við ca. 20 stelpur á netinu sem allar áttu von á barni í nóvember eins og ég. Í dag er fullt tungl og það er sagt að á fullu tungli verði allt brjálað að gera á fæðingardeildinni. Það virðist a.m.k. hafa einhver áhrif því a.m.k. 4 af þessum 20 eru búnar að fæða á þessum sólarhring (fór mikil internetnjósnastarfsemi í gang til að komast að því) og kannski fleiri sem við vitum bara ekki af ennþá. Ég vona að áhrif tunglsins haldist fram á kvöld og nái hingað í Hafnarfjörðinn.

4 ummæli:

Ragnheidur sagði...

Nei, nei ... þær eru sko a.m.k. fimm sem áttu í gær!

hdb sagði...

Og koma svo!!!!!

Nafnlaus sagði...

Það er engin tunglsýki í ykkar fjölskyldu. Dósóþeus kemur sunnudaginn 20.

Nafnlaus sagði...

Jæja það fer að vera lítið eftir að 20.nóvember er eitthvað að gerast?? Við bíðum öll spennt!