föstudagur, desember 30, 2005

Bless, bless Kisa


Elsta barnið mitt er flutt að heiman. Kisa litla hefur nú búið hér og þar um ævi sína. Hún fæddist í sveitinni rétt fyrir utan Selfoss, flutti síðan í Breiðholt, bjó tvo daga í vesturbænum en strauk þaðan og djammaði í Þingholtunum í 9 mánuði. Kom svo í Hafnarfjörðinn og nú er hún flutt í Grafarvog. Síðasta mánuðinn hefur greyið fengið litla athygli hér hjá okkur og bara leiðst frekar mikið en vonandi verður meira fjör hjá henni á nýja heimilinu. Svo er alltaf gott að vita að maður getur heimsótt hana reglulega.

1 ummæli:

hdb sagði...

Bless kisa. Ég þykist vita að börnin eiga eftir að sakna þín en amma gamla verður eflaust rólegri að koma í heimsókn.