þriðjudagur, janúar 03, 2006
24
Þar sem við hjónaleysin fengum ekki eina einustu skruddu til aflestrar í jólafríinu hefur letilífinu verið eytt fyrir framan imbakassann með fjórðu seríu af 24 í gangi. Mikil spenna í gangi og erfitt að rífa sig frá skjánum stundum. En það er eitt sem ég skil ekki ... þarf Jack Bauer aldrei að pissa. Ég skil það vel að maðurinn geti haldið sér vakandi í sólarhring, þurfi lítið sem ekkert að borða á meðan hann er í hasarnum en hann hlýtur að þurfa á klósettið einhvern tímann!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hann gæti verið með þvaglegg!!!
Rabó, Ég held að þú sért að tapa þér í smámunum... maðurinn er nú einusinn að bjarga heiminum...
Jack B.
ragnheiður,
afhverju talar jack b. um sig í 3. persónu? og hvernig þekkirðu hann?? :)
Annars er mitt "gisk" að hann sé ekki mannlegur :)
Skrifa ummæli