Best að láta pínkuponsulítið í sér heyra hérna ... svona af því í augnablikinu nenni ég ekki að gera neitt gáfulegra. Atli Þór er búinn að vera pínu óhress undanfarna daga en er allur að koma til. Hann fékk nefnilega dáldið stór kýli á bossann sinn. Á tímabili leit reyndar út fyrir að það þyrfti smá aðgerð til að laga bágtið hans og ég fór alveg á taugum en svo ákvað hann að redda þessu bara sjálfur svo að við höfum bara þurft að kíkja í nokkrar heimsóknir til læknis í eftirlit. Svo er Andri farinn að vinna aftur og við mæðginin erum bara tvö að dóla okkur heima. Verst að við þurftum að vakna snemma í morgun til að fara í ungbarnaeftirlit og erum svo að fara á barnaspítalann í fyrramálið. Þetta hentar okkur ekki alveg þar sem það samræmist ekki svefnvenjum barnsins að vakna svona snemma. Hann sofnar yfirleitt ekki fyrr er kl. eitt eða tvö og vill sofa til svona tíu á morgnana.
Eins og þið sjáið hef ég ekkert annað að tala um nema barnið akkúrat núna. Var að reyna að láta mér detta eitthvað annað í hug en það kemst ekkert annað að. Það er sennilega ósköp eðlilegt.
mánudagur, janúar 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli