föstudagur, janúar 27, 2006

Afruglari á heimilinu

Við erum tímabundið með afruglara á heimilinu og náum þá stöð 2 og öllum öðrum rásum sem boðið er upp á. Afar fróðlegt skal ég segja ykkur. Margir hafa sennilega heyrt af kafaranum sem á að hafa fundist uppi í tré eftir skógarelda og mun hafa verið dælt upp úr sjónum af þyrlu og svo verið sleppt með vatninu sem átti að slökkva eldinn. Með því að horfa á Discovery rásina hef ég komist að því að þetta er ekki mögulegt. Svo hef ég bætt spænskukunnáttuna (sem reyndar var afskaplega takmörkuð fyrir) með því að horfa á spænska sápuóperu á stöð 2. Ég hef fræðst um stjörnurnar (þessar í Hollywood en ekki á himninum), komist að því hvaða 50 atriði eru brot á tískulöggjöfinni og horft á lágkúrulegasta raunveruleikaþátt sem ég hef séð og gengur út á að koma upp um framhjáhald. Segið svo að sjónvarpið sé ekki fróðlegt!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

pældu í því, ef ekki væri fyrir digital island þá myndirðu ekki vita neitt af þessu! :)

Nafnlaus sagði...

Það þýðir víst voðaleg lítið að skammast í öðrum að nenna ekki að kommenta hjá sér og vera svo ódugleg við að kommenta hjá öðrum. Nú skal sko taka sig á í öllum deildum :) Vona annars að þið hafið það gott. Litli strákurinn þinn er voðalega sætur og vonandi fær maður nú að sjá hann fljótlega. Heyrumst.
Halldóra