mánudagur, janúar 16, 2006

Gervigróði

Nýtt fasteignamat fyrir íbúðina okkar er 3,5 milljónum hærra en það sem við borguðum fyrir hana á sínum tíma svo að við erum búin að "græða" alveg rosalega mikið. Svo fékk ég bréf frá Happdrættinu um daginn þar sem þeir tilkynntu mér að þeir ætluðu að hækka miðaverð en líka að fjölga vinningum svo að ég þarf bara að vera eitthvað meiriháttar óheppin ef ég vinn ekki að minnsta kosti eina milljón. Þá get ég kannski hætt að svekkja mig á ósanngjörnum reglum um fæðingarorlofsgreiðslur og farið að skoða utanlandsferðir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Svo er það skemmtilegasta við hærra fasteignamat að maður "fær" að borga meiri fasteignagjöld...*hrmpf*

hdb sagði...

Mér skilst að fasteignir hafi ekki hækkað nærri eins mikið á Spáni. Spurning um að innleysa gróðann og flytja bara á sólríkari stað. Þá getur maður líka alveg hætt að pæla í þessu utanlandsferðaveseni - maður er alltaf í útlöndum ;)