föstudagur, janúar 20, 2006
Áfram með námið
Jæja, þá er ég hætt að vera "bara" í fæðingarorlofi og farin að sinna náminu líka. Mætti í fyrsta sinn í gær í fyrirlestur en ég hyggst taka eitt námskeið á þessari önn. Eins og ég gat varla hugsað mér að fara að vesenast í þessu fyrir viku síðan þá leggst þetta voða vel í mig núna. Hlakka til að fara að nota heilann aðeins aftur (sem er búinn að vera í frekar hlutlausum gír undanfarið - t.d. fór ég inn á baðherbergi til að skipta um bleiu en barnið var enn í vöggunni sinni inni í svefnherberginu!) og ekki síður að vera á meðal fullorðins fólks reglulega. Keypti mér líka bókina sem kennd er í námskeiðinu og þykist ætla að lesa hana þegar drengurinn sefur ... þarf sennilega að trappa mig talsvert niður í internethangsi til að ná því.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Bara hvað?!!! Mér finnst nú barneignir ekkert eiga skylt við "bara";)hihi En dugnaðurin í þér að skella þér í kúrs líka mar;)
Skrifa ummæli