miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Bak í takinu

Við Atli Þór höfum verið ansi dugleg við að viðra okkur úti undanfarið. Ég þramma hvern göngustíg í augsýn á meðan litli kallinn sefur vært í vagninum sínum. Í gærmorgun hafði hins vegar snjóað töluvert hér á holtinu sem gerði vagnferðina ennþá notalegri fyrir þann litla sem elskar hoss og ójöfnur. Erfiði göngutúrsins jókst hins vegar nokkuð fyrir móðurina og þá sérstaklega síðasti spölurinn upp brekkuna. Þetta skilaði sér náttúrulega í hrikalegu taki í bakinu sem heitt bað og brjóstagjafavænar verkjatöflur slá ekki nógu mikið á. Því var vagninn hvíldur í dag.
Hins vegar reyndum við svolítið nýtt og fórum í ungbarnaleikfimi. Atli var voðallega hrifinn af litlu lokkaprúðu stúlkunni á næstu dýnu við okkur og hafði meiri áhuga á að dást að henni en að gera æfingarnar. Hann stóð sig nú samt voða vel og var einna bestur í að grípa og halda á hringlu.

1 ummæli:

hdb sagði...

Húrra fyrir Atla! Hann er svo duglegur og auðvitað er hann hrifinn af lokkaprúðum stúlkum - nema hvað!