föstudagur, mars 03, 2006

Nýir tímar og gamall vagn

Ókosturinn við að búa á þriðju hæð er að eftir hressandi göngutúr með barnavagninn er ekkert annað að gera en að fara inn með vagninn og við það vaknar drengurinn að sjálfsögðu alltaf. Þetta þýðir að nema mig langi til að ganga bæinn á enda og deyja svo úr þreytu þá sefur hann ekki lengur en einn til einn og hálfan klukkutíma í einu í vagninum. Þegar hann leggur sig svo inni á daginn eru lúrarnir sjaldan lengri en 45 mínútur. Af þessum sökum fór ég á stúfana eftir gömlum barnavagni til að hafa á svölunum og núna finnst mér ég hafa himin höndum tekið. Skyndilega ná lúrarnir tveimur klukkustundum eins og ekkert sé og ég hef virkilega tíma til að gera eitthvað á meðan. Í stað þess að vera húsmóðurleg fór ég í það að strípa niður heimasíðuna mína sem hefur lengi farið í taugarnar á mér sökum ljótleika. Núna er hún bara voða einföld og ég er mikið ánægðari með hana. Á samt eftir að laga eitthvað smotterí ...

1 ummæli:

hdb sagði...

Flott nýja heimasíðan!