mánudagur, maí 08, 2006

Afleysing afleysara

Um daginn fékk ég símtal frá vinnunni. Sú sem að leysir mig af á meðan ég er í fæðingarorlofi er veik og ekki útlit fyrir að hún komist til vinnu á næstunni. Þar sem hún er nú þegar búin að vera fjarverandi í tæpan mánuð stefnir í óefni og þá var hringt í mig til að bjarga málunum lítillega. Ég fór sem sagt að vinna í morgun og var til hádegis og ætla að gera hið sama á morgun og jafnvel fleiri daga ... fer eftir því hvað ég næ að vinna hratt. Ég er því eiginlega komin í tímabundið orlof frá fæðingarorlofinu og leysi af minn eigin afleysara. Reyndar er útlit fyrir að annar afleysari fáist fljótlega og mun hún því leysa mig af sem afleysara afleysarans.
Er afleysari annars orð? Þegar ég er búin að skrifa það svona oft finnst mér það hljóma hálf heimatilbúið. Læt það samt standa.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mér finnst afleysari mjög flott orð! Hljómar svolítið eins og afréttari ;)
En er ekki svolítið leim að vera afleysari afleysara afleysara?