miðvikudagur, september 20, 2006

Hver þarf menntun þegar maður getur keypt sér gráðu?

Það gerist nú ansi oft að ég fæ alls konar tölvupóst frá ókunnugu fólki sem ég vill selja mér hitt og þetta. Ég nenni aldrei að lesa þessi bréf enda er þetta ekkert annað en ruslpóstur og fer þess vegna beint í ruslamöppuna í tölvunni. Sem ég sit í tölvunni og rembist við að læra fæ ég eitt svona bréf sem ég álpast til að lesa. Það er svohljóðandi:

A Genuine Univers1ty Degree 1n 4-6 weeks!
Have you ever thought that the only thing stopping you from a great job and better pay was a few letters behind you name?
Well now you can get them!

BA BSc MA MSc MBA PhD

Within 4-6 weeks!
No Study Required!
100% Verifiable!
These are real, genuine degrees that include Bachelors, Masters, MBA and Doctorate Degrees. They are fully verifiable and certified transcripts are also available.


Hvað er maður eiginlega að eyða tímanum í að læra, sitja fyrirlestra og vinna verkefni þegar maður getur græjað rétta plaggið á 4-6 vikum án þess að leggja nokkuð á sig!?

3 ummæli:

hdb sagði...

Hmmm... væri þá helst til seint í rassinn gripið hjá mér en séns fyrir þig. Verst að þú ert búin að borga skráningagjöldin ;)

Kolfinna sagði...

Þú meinar það. Að öll þessi ár séu eiginlega til einskis þar sem að maður getur bara keypt sér svona fínerí. Verst að hafa ekki vitað þetta strax eftir menntaskóla ;p

Nafnlaus sagði...

úff, arg, hvað er ég að gera hérna!, eyða fullt af peningum og tíma í þetta þegar ég gæti gert þetta á 4-6 vikum og án þess að læra, hmm........æi of seint, jæja, best að halda bara áfram að lesa