mánudagur, október 30, 2006
Sjálfsskoðun
Ég er að vinna verkefni fyrir skólann sem krefst þess að ég geri SVÓT greiningu á sjálfri mér. Fyrir þá sem ekki vita stendur SVÓT fyrir styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri. Þetta er sem sagt meiriháttar sjálfsskoðun. Eftir að hafa legið yfir þessu í smá tíma fór ég að fikta í outlookinu mínu og er búin að skrá öll verkefnaskil og próf í dagbókina þar. Notaði svipað system í Lotus Notes þegar ég var að vinna á Landspítalanum og fannst það mjög þægilegt en ætlaði bara að skrifa í bók núna í vetur. Bókin gleymist reyndar mjög oft og það er svona happa og glappa hvað ég skrifa í hana, en tölvan fylgir mér alltaf. En núna get ég sennilega sagt að einn styrkleiki minn sé að ég sé skipulögð. Og kannski hagsýn líka þar sem ég þurfti ekki að borga mörg þúsund krónur fyrir námskeið í tímastjórnun til að læra á þetta. ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Sko þig!!! Ég nota líka outlookið í allt svona og finnst það ekkert smá þægilegt. Ég nenni aldrei að skrifa í svona bækur. Við erum svo skipulagðar systurnar!!!!
Skrifa ummæli