mánudagur, október 09, 2006

Sybbin



Þessi mynd lýsir því afar vel hvernig mér líður akkúrat núna. Sit í Odda og er að reyna að læra en einhverra hluta vegna er ég bara að blogga um ekki neitt. Augnlokin haldast varla uppi, hugurinn reikar um allt en staldrar aldrei við það sem viðkemur náminu og gáfulegar hugsanir láta ekki á sér kræla. Ætlaði að reyna að bæta ástandið áðan og settist niður með kaffibolla en held ég sé bara syfjaðri eftir það. Gæti verið mánudagur í dag?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég skal reyna að senda þér eitthvað af mínum gáfum...kennarar eiga nefnilega alltaf svo mikið af gáfum á lager! ;)

Annars skil ég þig voða vel með þreytuna...mánudagur til mæðu!

Gangi þér vel að læra