þriðjudagur, janúar 30, 2007

Londonferðin

Ég er komin aftur frá útlandinu mikla og þrátt fyrir að hafa bara verið í burtu í fjóra daga finnst mér þeir hafa verið miklu miklu fleiri vegna þess hve mikið gerðist á þessum tíma. Þetta var sem sagt ferð með Maestro sem er félag meistaranema í viðskipta- og hagfræðideild og tilgangurinn að heimsækja íslensk útrásarfyrirtæki með starfsstöðvar í London. Af nógu að taka þar en við heimsóttum fjögur fyrirtæki auk þess að líta við í íslenska sendiráðinu. Auðvitað þurfti maður að líta við í búðunum úti og svo fór ég á Queen sýningu sem var frábær og hluti af hópnum fór á Westham leik og fékk hinar glæsilegustu móttökur þar og V.I.P. meðferð í boði E. Magnusson. Það var vægast sagt aldrei dauð stund þessa fjóra daga og þess vegna er ég enn ansi lúin auk þess sem ég kláraði fæturna mína. En það þýðir ekki að kvarta, nóg að gera í skólanum og styttist í skil á hinum ýmsu verkefnum svo nú er bara að spýta í lófana og brillera.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ferð nú létt með að brillera í þessu skóla þínum... farin að kenna kennaranum :)
JAK