... kominn tími á að flytja blessaða myndina aðeins neðar á síðuna og setja aðra af London Eye séð neðan frá í staðinn. Kærar þakkir fyrir allar hamingjuóskirnar bæði hér á síðunni, í síma og í eigin persónu. Londonferðin var mjög fín og rosa fínt veður framan af. Við gengum og gengum eins og (gengur og) gerist í svona ferðum og skoðuðum okkur um, heimsóttu söfn, versluðum og sáum söngleikinn Avenue Q. Hrönn tók lest frá Edinborg og hitti okkur á föstudaginn sem var rosa gaman.
Það var samt voða gott að koma heim aftur og ekki síst að knúsa gorminn aftur en hann var í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa og fór með þeim í sumarbústað. Honum var nú frekar mikið sama þegar mamma kom að sækja hann enda var hann að leika við afa sem að sjálfsögðu er aðalmaðurinn í heiminum. Svo mikill aðalmaður að fjarstýrði bílinn sem pabbi keypti í London (og er alveg hrikalega skemmtilegur) gengur undir nafninu afi - sem hlýtur að teljast æðsta viðurkenningin frá drengnum.
Annars erum við alveg komin í sumarskap hér á bæ - vökum fram eftir á kvöldin og leikum okkur mikið úti. Ég er búin að fá allar einkunnir og er mjög ánægð með þær, byrjaði í gær að vinna á LSH en ég ætla að vera þar í hálfu starfi í sumar ásamt því að byrja á MA ritgerðinni. Læt ykkur vita hvernig gengur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli