
Og hérna kemur pollagallamyndin. Prik eru mjög vinsæl leikföng þessa dagana ekki síst ef það er voffi á svæðinu til að eltast við það.

Hérna er voffinn sem var voða góður og vakti mikla athygla Atla. Með þeim á myndinni eru Björn (sem á voffann og passaði upp á að "litla barnið" fengið alltaf prikið aftur svo hann gæti hent því í hundinn aftur) og Bergdís sem var voða dugleg að passa frænda sinn.


Svo lékum við okkur heilmikið með flugdreka, eða poppa eins Atli kaus að kalla það. Þessar myndir bæta vonandi upp fyrir uppfærsluleysið á síðunni hans Atla.
2 ummæli:
Flottar myndir af Atla útilegugaur :) svo langt síðan maður hefur séð hann! Heyrði samt í honum á heilsugæslunni á fimmtudag...án þess þó að vita að þetta væri hann! ;)
Lofa að við komum í heimsókn í kattlausa húsið áður en þið flýjið land!
Alltaf velkomin í heimsókn og endilega kíkið við! c",)
Skrifa ummæli