fimmtudagur, júní 14, 2007
Kisa er farin ...
... frá okkur einu sinni enn. Henni var skilað eftir að hún fór frá okkur síðast og hefur skemmt Gormalingnum mætavel á meðan og meira að segja náð að strjúka ofan af þriðju hæð frá okkur. Hún fannst reyndar aftur samdægurs en mig grunar að eitthvað sé farið að ganga á lífin hennar níu. En núna hefur hún eignast nýtt heimili þar sem hún getur farið út og hlaupið og börnin orðin nógu stór til að vita að maður á ekki að toga í skottið eða klípa í feldinn á kisum. Glöðust er ég að þurfa í það minnsta ekki að senda hana í "sveitina" áður en við förum til Amríku.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
JEI!
Skrifa ummæli