Við höfum átt ágætis helgi. Í gær var stelpuferð í Outlet sem er í um klukkustundar akstursfjarlægð frá okkur. Andri var með Atla á meðan og fékk aðstoð frá Sóldísi skvísu við að hafa ofan af fyrir snáðanum. Mig langaði nú aðallega til að kaupa mér einhverja yfirhöfn en úrvalið á slíkum flíkum var frekar takmarkað. Kreditkortið fékk nú engu að síður smá æfingu og vorum við Atli gölluð upp. Andri greyið fékk ekki neitt. Í dag var svo bara hangs og rólóferð í frábæru veðri. Lítið um það að segja svo sem.
Ég hef reyndar komist að þeirri sorglegu staðreynd að það að fá gott bílastæði gleður okkur hjónin kjánalega mikið. Það er yfirleitt ekkert mál að fá stæði hér í kringum húsið en stundum þarf maður að leggja aðeins frá og labba nokkra aukametra. Svo sem ekkert mál en einhvern veginn fer maður að meta það betur þegar maður fær bílastæði alveg við húsið. Þegar slíkir hátíðarviðburðir verða kemur maður inn sigri hrósandi og segir stoltur frá góða stæðinu og ef enginn er heima sendir maður jafnvel sms með stórfréttunum. Þegar svo kemur að því að fara eitthvað annað liggur við að maður tími ekki að keyra bílinn í burtu og missa stæðið. Ætli þetta sé ekki merki um frekar viðburðasnautt líf ... sem hlýtur nú bara að vera gott þar sem engar fréttir eru góðar fréttir, ekki satt!?
sunnudagur, október 14, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ég kannast alveg við að verða glöð yfir góðu bílastæði. Sérstaklega þegar ég á erindi niður í bæ. Versta er að ég þarf ALLTAF að leggja lengst í burtu og labba. Þess vegna er ég hætt að fara niður í bæ.
Vona að þið hafið það gott í Ameríkunni.
Kveðja,
Halldóra og co.
... hehe þetta er einn af kostunum við að vera alltaf á hjóli... bara að maður gæti hugsað þannig þegar maður lendir í ausandi rigningu, keðjan fellur niður og það er lint eða sprungið á dekkinu!!
Annars búum við í miðbænum hérna úti þannig að þegar fólk er á bíl sem heimsækir okkur þá þarf það yfirleitt að leggja á bílastæði við almenningsgarð og ánna. Sem er allt í lagi nema að nóttu til :S Vona að þið þurfið ekki að leggja á eitthverjum spúkí stað :S
Hey sæta!!! Vildi aðallega kvitta fyrir mér:) Gaman að lesa um ævintýrin ykkar, skil þetta með gott bílastæði, óþolandi ef maður fær ekki stæði þar sem maður þarf að leggja!!! Ekki það að það er nú reyndar betra fyrir heilsuna að labba smá hehehehe.
Skrifa ummæli