þriðjudagur, janúar 22, 2008

Jæja!

Ég er barasta búin að setja nokkrar myndir á netið ... eitthvað sem hefur setið á hakanum í laaangan tíma. Reyndar svo langan tíma að þetta eru eiginlega bara gamlar myndir, það sem ég átti eftir af nóvember og svo desember fram að jólum. Jól og janúar koma þá í næsta holli hvenær sem það verður.
Fyrsti leikskóladagurinn þetta árið hjá Atla í dag. Hann var hinn kátasti að vera mættur í morgun og lét eins og það hefðu bara liðið tveir dagar síðan hann var þarna síðast en ekki næstum tveir mánuðir. Vinkaði mér bara bless og fór að leika. Ég hef þá bara notið þess að vera ein heima, sötrað te fyrir framan tölvuna á meðan Suzy spólar í stofunni. Já Suzy er ... ömm ... "heimilishjálpin" okkar sem Andri fjárfesti í þegar hann kom aftur út eftir áramótin. Hægt að sjá mynd af henni hér. Þetta er sem sagt vélmennisryksuga sem þræðir íbúðina eftir pöntunum og hlífir manni sjálfum við að hamast með ryksuguna. Og gerir þetta líka svona assgoti vel. Algjör snilld - sérstaklega þegar maður býr í teppalagðri íbúð.
Annars hefur hlýnað hér hjá okkur, er svona í kringum frostmark og farið að snjóa. Andri er á fyrstu vaktinni sinni á nýrri sjúkrabílastöð í dag. Er í ansi fínu úthverfi og allt annað umhverfi en á stöðinni sem hann hefur verið á hér í borginni. Helsti gallinn að það getur tekið ansi langan tíma að keyra á milli, sérstaklega á umferðartímum. Jæja, mamma búin giva, eins og Atli myndi orða það. Bless í bili. ;)

Engin ummæli: