Allt komin í vanagírinn hér á bæ. Námsmaðurinn verið heldur mikið á vöktum og lítið heima undanfarið (og verður áfram) en það er bara allt í lagi. Þá getur hann nebbla tekið sér lengra frí síðar og við þvælst eitthvað um saman. Talandi um þvæling þá fórum við á flóamarkað á Trax farm (þar sem við fórum á hausthátíðina og keyptum graskerið) með öllum Íslendingum í húsinu og Jen og Lisu systur hennar. Flóamarkaðurinn kannski ekki alveg upp á marga fiska en Atli keypti sér þó gröfu sem hann er svo skíthræddur við þegar batteríin eru komin í hana og hún tekur á rás með miklum óhljóðum. Fórum svo út að borða í bakaleiðinni og áttum bara hin ágætasta dag.
Á sunnudag var verslunarleiðangur hjá okkur fjölskyldunni og húsfrúin festi barasta kaup á hlaupaskóm. Er meira að segja búin að testa þá og er með harðsperrur því til sönnunar. Ákváðum svo að fá okkur eitthvað í gogginn áður en við héldum heim á leið og rákum þá augun í Chuck E. Cheese. Vægast sagt mikið fjör þar en þyrftum eiginlega að fara aftur og þá í miðri viku þegar það er ekki afmæli í gangi og svoleiðis. Atli fattaði ekkert út á hvað þetta gekk allt saman en vissi þó að þetta var eitthvað ofurspennandi og skemmti sér bara konunglega þrátt fyrir fattleysið. Andri er búinn að skella inn nokkrum nýjum myndum, m.a. frá Chuck E. Cheese ... hægt að skoða hér. Ég ætla að fara að búa mig undir að sækja gorminn á leikskólann og sjá hvort hann hafi ekki jafnað sig eftir átakanlega kveðjustund í morgun. Hefur sennilega sett hann eitthvað út af laginu að pabbi skyldi koma með á leikskólann.
þriðjudagur, janúar 29, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli