Andri er búinn að vera á endalausum næturvöktum núna, nótt eftir nótt. Ekki nema fjórar eftir og þá verður sko fjör. Í næstu viku ætlum við að fara í smá ferðalag, skoða Pennsylvaniufylki betur. Förinni er heitið í bæinn Hershey enda er ég forfallinn súkkulaðifíkill og get því ekki annað en heimsótt þennan bæ. Ég sé mig fyrir mér sem Glám og Skrám í sælgætislandi!
En við ætlum nú ekki bara að tapa okkur í súkkulaðibænum heldur ætlum við líka að kíkja á sveitirnar í kring, stundum kallaðar Dutch Country með tilvísun í allt Amish fólkið á svæðinu. Ætti að vera skemmtilegt.
Ekki beint mikið eftir af dvölinni hér í Pittsburgh, bara 18 dagar. Vildi að ég gæti tekið vorveðrið með mér til Íslands. 20 - 25 stiga hiti og hálfskýjað er eins og það á að vera. Ætli veðrið í himnaríki sé ekki eitthvað svipað?
miðvikudagur, maí 07, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli