föstudagur, maí 09, 2008
Happafengur á uppboði
Í gærkvöldi fórum við í safnaðarheimili kirkjunnar sem leikskólinn hans Atla er í. Þar var nefnilega vorhátið sem líka var til styrktar starfseminni ... engir opinberir aðilar sem koma að rekstrinum. Þarna var sem sagt í gangi svokallað þögult uppboð. Þá er ýmsum hlutum raðað á borð og fólk skrifar á blað hvað það vill bjóða í hlutina. Sá sem á hæsta boðið þegar uppboðinu lýkur fær svo að kaupa hlutinn. Á uppboðinu var einn hlutur sem okkur fannst mjög sérstakur og við buðum í. Hér fyrir neðan er mynd af honum. Og ef þið voruð að velta því fyrir ykkur að þá vorum við hæstbjóðendur í þennan hlut og tókum hann þess vegna með okkur heim. ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli