fimmtudagur, maí 01, 2008

Slen

Getur maður andast úr sleni? Ég hef varla haft mig út úr húsi síðustu daga, einfaldlega nenni því ekki. Er líka búin að vera með stöðugan höfuðverk sem er að gera mig bilaða. Gott ráð við höfuðverknum væri reyndar að fara út í smá göngutúr og fá sér frískt loft en .... ég bara nenni ekki.
Gormurinn er búinn að eiga góða daga á leikskólanum í þessari viku og rannsóknin mín fyrir lokaverkefnið er bara á ágætis róli og útlit fyrir að ég geti sent hana út fljótlega. Aldrei að vita nema ég útskrifist bara í haust.
25 dagar í flutning til Íslands og ég gæti alveg byrjað að sortera og jafnvel pakka einhverju niður í rólegheitunum. Að ég minnist ekki á þvottinn sem bíður eftir mér, skítugan bakarofninn og önnur "skemmtileg" heimilisstörf. Hef alveg nóg að gera sem sagt, ég einfaldlega nenni því ekki. Eyði tímanum frekar í tölvunni að gera ekki neitt af viti eða glápa á innihaldssnautt sjónvarpsefni eða lesa krimma. Þetta náttúrulega gengur bara ekki!

Engin ummæli: