Oooo ég er orðin svo rugluð í hausnum núna. Er að búa til vaktaáætlun og hef verið að því í næstum allan dag og núna er ég orðin svo rugluð að ég veit ekkert hvað ég er búin að gera og hvað ekki, fletti bara fram og til baka og er alveg lost. Þarf eiginlega að komast yfir sem mest í dag af því að kerfið verður lokað á morgun og alla helgina (sem gerir lítið til fyrir mig) og alveg hægt að reikna með einhverju rugli á þriðjudaginn líka.
Annars er ég að fara í leikhúsið með Helgu Dögg í kvöld að sjá Don Kíkóta. Er doldið spennt að sjá Halldóru Geirharðs í aðalhlutverkinu. Svo er ætla nabblarnir að hittast heima hjá Gunnhildi á laugardagskvöldið og borða saman. Það verður gaman! Svo er ég búin að skrá bílinn minn til sölu hjá ofubílasalanum Sif. Ef þið viljið kaupa hann megið þið hringja í mig ;) En nú er best að fara að ruglast meira ...
fimmtudagur, maí 27, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ferðu þá að hjóla í vinnuna? Eða ætlið þið að kaupa annan bíl. Ég er nú bara að forvitnast þar sem ég hef ekkert að gera núna í vinnunni. Geðveikin byrjar ekki fyrr en eftir helgi hjá mér.
Sandra forvitna
Það er nú planið að kaupa nýjan bíl, eða öllu heldur annan bíl!
Skrifa ummæli