Við Andri fórum á tónleikana með Pink í gær eins og til hafði staðið. Sumir tónleikagestir virtust hafa talið það vera skyldu að mæta í einhverju bleiku til heiðurs söngkonunni þó að fólk hafi tekið þessu misalvarlega. Ég hreinlega klikkaði á þessu reyndar og skar mig því úr í gallabuxum og svörtum og hvítum bol en Andri var í bleikri skyrtu. Við mættum þegar vel var liðið á upphitunina hjá Í svörtum fötum og þá var eitt sæti laust í stúkunni hjá leiðindastelpum ársins sem algjörlega neituðu að þjappa sér í endann svo einhverjir tveir gætu verið með eitt sæti og tröppu saman. Það hvarflaði náttúrulega ekki að okkur að púkka upp á svona fólk svo við hlömmuðum okkur efst í tröppurnar þar sem fór bara afar vel um okkur. Tónleikarnir voru mjög góðir en ég var nú doldið skúffuð yfir því hvað þeir voru stuttir, ekki nema klukkutími og 20 mínútur, og enduðu líka hálfsnubbótt. Síðasta lagið var Get the party started og svo bunaði hún útúr sér "Takkfyrirogbless" og þar með var hún farin, ljósin kveikt og rótararnir farnir að taka saman. Hún var ekkert klöppuð upp og ekki eitt aukalag eða neitt. Tónleikarnir voru þó skemmtilegir á meðan á þeim stóð og kannski var bara ágætt að vera kominn tiltölulega snemma heim.
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli