Jæja, þá er ég komin með nýja skrifstofu og búin að flytja mig upp um heilar fimm hæðir! Hef bara haft eitthvað svo mikið að gera þessa dagana að ég hef ekki mátt vera að því að koma mér fyrir þarna uppi svo að það er allt í drasli og fullt af dóti sem ég hef ekki náð að flytja með mér upp enn þá. Fyrir þá sem ekki vita er ég að flytja mig milli starfa innan LSH og er nú að taka við starfi skrifstofustjóra á lyflækningasviði 1. Er nú reyndar búin að vera að sinna því starfi samhliða hinu undanfarið svo breytingin er kannski ekkert svo mikil. Líst annars bara vel á mig þarna uppi, dáldið kaldara samt en niðri einhverra hluta vegna (eins gott að Andrea Róberts sagði að ponchoar yrðu í tísku í vetur). Svo er ég alltaf að ímynda mér að ég sé að missa eitthvað útum gluggann svo ég þori ekki að opna hann. Það þyrfti nú samt sennilega meiri klaufaskap en í mér býr til að missa eitthvað útum litla opið á glugganum án þess að vinna beinlínis markvisst að því að henda hlutum þarna út. Skil eiginlega ekkert í því hvað ég er að pæla í þessu á annað borð!
fimmtudagur, ágúst 05, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli