þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Mygluhelgi
Usspuss! Þetta hefur nú verið meiri helgina. Byrjaði reyndar afar vel með afmæli hjá Önnu Pönnu, sem okkur tveim fannst að minnsta kosti afar skemmtilegt. Eftir þennan hápunkt helgarinnar lá leiðin svo bara niður á við. Hálsbólga, nefrennsli, hiti, hausverkur og beinverkir hafa einkennt síðustu daga að ónefndum hrikalegum leiðindum. Svo er nú ekki beint uppörvandi að fá reglulega símtöl frá Costa del Sol frá áhyggjufullri móður minni með lýsingum á sandi, strönd og sól. Fór ekki að vinna í morgun en finnst ég vera að hressast núna svo ég fer sennilega í fyrramálið. Komin á hósta- og nefrennslisstigið. Vona að ykkar verslunarmannahelgi hafi verið skemmtilegri!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli