fimmtudagur, júlí 29, 2004

Alltaf verið að slá

Ég get svoleiðis svarið að grasið á lóðinni hérna í vinnunni er slegið í hverri viku. Enda nær það ekkert að spretta og verður varla grænt. Meira að segja núna í dag er verið að slá í ausandi rigningunni beint fyrir utan gluggann minn. Það er nú ekki beint vinnuhvetjandi að hafa þennan hávaða í eyrunum svo að valið snýst um læti eða að kafna úr súrefnisskorti. Held svo að lausnin felist í því að hafa gluggann lokaðann eins lengi og ég þoli og opna svo aftur þangað til að ég ærist.

Engin ummæli: