miðvikudagur, júlí 14, 2004

Happdrætti smappdrætti

Nú hef ég átt miða í Happdrætti HÍ í rúmlega ár. Ég spila nú ekki með til að vinna en einhvern veginn hélt ég að það fengu allir einhvern tímann smá vinning, þúsundkall eða svo. Bara svona smá bragð til að gera leikinn meira spennandi. Finnst líka eins og allar gamlar frænkur og ömmur sem spila samviskusamlega með séu alltaf að fá einhverja smá vinninga. Kannski þarf maður að vera gömul kona til að fá vinning því að aldrei nokkurn tímann er númerið mitt dregið. Kannski er 13 óhappatala eftir allt saman, það er nefnilega 13 í númerinu á mínum miða. Eða þá að ég þurfi bara að halda áfram að spila þar til ég er orðin gömul kona og þá fæ ég kannski þúsund króna vinning!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hmm... kannski tarftu ad spila til tess ad vinna til tess ad geta unnid eitthvad - verdur ad leggja meiri hugarorku í tetta :o)
En kannski kemur bara stóri vinningurinn naest - ég held ad gömlu konurnar vinni hann aldrei.
Kolfinna