mánudagur, júlí 12, 2004
Að vinna eða ekki að vinna!?
Ég þoli ekki fólk sem kvartar yfir því að þurfa að sinna vinnunni sinni. Þurfti að hringja á ónefnda skrifstofu hér á landspítalanum til að fá upplýsingar sem ég hef ekki aðgang að og það hefði mátt halda að ég hefði beðið manneskjuna að fara í fjórfalt heljarstökk af viðbrögðunum að dæma. Allt sem hún þurfti að gera var að opna eitt kerfi (sem hún er nú sennilega með opið allan daginn hvort eð er), slá inn eina kennitölu, smella tvisvar til þrisvar sinnum með músinni og lesa upp eina tölu fyrir mig. Búið! En nei, hafði ekki tíma í það strax og ætlaði að athuga þetta og hringja svo í mig aftur og var þar að auki móðguð yfir að ég skildi vera að eyða hennar dýrmæta tíma í svona vitleysu! Tveim tímum síðar hef ég ekkert heyrt. Yndislegt svona samstarfsfólk!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli