Andri var tekinn í hina endanlegu manndómsvígslu af tengdaföður sínum tilvonandi í gær. Þannig er mál með vexti að Andri hefur alltaf fengið af og til heiftarlega verki í kringum einn endajaxlinn sinn. Pabbi hefur nú fylgst náið með þessu og potað í þetta og byrjaði manndómsvígsluna einhvern tíma í fyrra með því að brenna burt góðan part úr holdinu í kringum jaxlinn. Um daginn tóku þessir verkir sig upp aftur og Andri búinn að kvarta og kveina svo að kallinn hóaði bara í drenginn og dró úr honum endajaxlinn í gær. Þá kom sér nú vel að Andri hafði farið að veiða í gærmorgun og fékk einn urriða sem var í matinn svo það var a.m.k. ekkert seigt undir tönn í kvöldmat.
föstudagur, júlí 16, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
eitt verður þó að koma fram, að dr.Björgvin fær fullt hús stiga fyrir vasklega framgöngu og einstaklega góða deyfingu.... ekki það að Andri hafi verið eitthvað smeikur!!!
kveðja,
tengdasonurinn tilvonandi.
Skrifa ummæli