Ég er alveg afskaplega syfjuð núna og held ég ætti bara aðeins að reyna að vakna áður en ég fer að gera eitthvað. Annað gæti verið skaðlegt mér og mínu nánasta umhverfi. Ég er svo syfjuð að ég get ekki haldið almennilega á kaffibolla heldur skyldi eftir mig slóð af kaffidropum frá kaffivélinni að skrifborðinu mínu. Var svo að hefta eitthvað og í stað þess að leggja heftarann frá mér missti ég hann um leið og ég sveiflaði hendinni svo að hann flaug yfir þvert herbergið. Sem betur fer var enginn fyrir.
þriðjudagur, júlí 20, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Alveg augljóst á sídustu faerslum ad tú tarft á fríi ad halda :o)
Hvad eru annars margir dagar í sólina núna?
Kolfinna
Þeir eru 30 ennþá!
Greinilega mjög syfjuð... ljót y-villa hjá íslenskufræðingnum sjálfum - eins gott að þú ert á leiðinni í frí...
hdb
Úpps!!! Ég var bara að gá hvort þið tækuð eftir villunni.
Skrifa ummæli