mánudagur, júlí 19, 2004

Náladofi

Ég fékk náladofa í puttana áðan. Man ekki til þess að hafa lent í því áður. Gerði mér erfitt um vik við að leggja saman reikninga því í stað þess að fletta reikningunum með vinstri og lemja á reiknivélina með þeirri hægri, þurfti ég að nota hægri í bæði. Áhugavert, ekki satt!?
Það er annars alltaf svolítil dramatík í kringum þessa reiknivél. Þetta er nefnilega svona prentreiknivél í eldri kantinum og það drynur afar skemmtilega í henni í hvert skipti sem maður ýtir á plús eða mínus eða samasem o.s.frv.. Svoldið spennandi að slá inn 1230 - *drunndrunn* - 890 - *drunndrunn - 1540 - *drunndrunn* og svo útkoman enn þá meira spennanndi með langri drunu - *drunndrunndrunndrunndrunn* - 3660. Já, ég lifi svo sannarlega spennandi lífi þessa dagana.  

1 ummæli:

Ágúst Ingi Kjartansson sagði...

það er gott að þú skemtir þér á hlutunum