miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Sumarfrí

Jæja, þá er hin langþráða stund runnin upp. Ég er komin í sumarfrí. Eins og kannski einhverjir hafa tekið eftir þá er ég á leið til Mallorca og fer í loftið eldsnemma í fyrramálið. Ef einhverjir innbrotsþjófar hugsa sér gott til glóðarinnar verð ég að hryggja þá með því að íbúðin mín kemur ekki til með að standa auð á meðan ég verð að heiman svo það þýðir ekkert að reyna að brjótast inn. Annars bið ég ykkur vel að lifa og þið getið fylgst með veðrinu hjá mér hér til hægri.

Engin ummæli: