þriðjudagur, janúar 04, 2005

Íbúð, íbúð, íbúð

Hef ekki heyrt bofs frá fasteignasölum eða íbúðaseljendum vegna Álfholtsins. Við eigum nebbla að fá afhent á morgun og ég veit ekki alveg hvernig svona fer fram. Endaði svo á að hringja á fasteignasöluna og spurja bara og fékk ekkert að vita. Heyri samt vonandi eitthvað í þeim á eftir. Ef einhver sem veit er að lesa má hann láta mig vita hvernig maður á að gera svona.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þetta fer ekki fram í gegnum fasteignastofuna. Þú og seljandi íbúðarinnar mælið ykkur mót, yfirleitt í kringum hádegi (minnir að ég hafi lesið það einhversstaðar) og hann lætur ykkur fá lyklana. Verrí simpöl mæ frend! :) Svona var þetta hjá okkur heisa allavega, töluðum bara við kallinn og ákváðum tíma til að hittast. Þetta var voða óformlegt. Svo fór hann bara. :D
Gangi ykkur vel á morgun og ég hlakka til að sjá the new lovenest ;)

maggan