fimmtudagur, mars 10, 2005
B01 B06 B09 B11 C08
Úff púff! Er að fara yfir launaflokka hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á sviðinu og skrá í hvaða launaflokk hver og einn grunnraðast og hvaða viðbótarlaunaflokka þeir fá og hvers vegna. Þessir einstaklingar eru ekki nema um 320 og mjög misjafnt hvort og þá hvar þessar upplýsingar er að finna. En þetta er svo gjörsamlega þess virði - á eftir að spara mér og öðrum vinnu í framtíðinni svo það er bara að halda áfram og reyna að drífa þetta af. En er orðin ansi ringluð á þessu og mig mun ábyggilega dreyma launaflokka í nótt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli